Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hækkun milli ára er innan við 1% á leikskólum Reykjanesbæjar
Miðvikudagur 20. janúar 2016 kl. 16:10

Hækkun milli ára er innan við 1% á leikskólum Reykjanesbæjar

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæðis hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. febrúar 2015 til 1. janúar 2016. Nær öll sveitarfélögin hafa hækkað gjaldskránna, nema Seltjarnarneskaupstaður sem hefur lækkað hana. Hjá Reykjanesbæ var gjald fyrir átta tíma vistun hækkað um 0,8 prósent, sem er með því lægsta meðal 15 stærstu sveitarfélaganna. Gjaldið í Reykjanesbæ fór úr 33.320 krónum í fyrra í 33.570 krónur í ár. Lægra gjald er fyrir forgangshópa og nam hækkun á milli ára í Reykjanesbæ 0,9%. Í janúar 2015 var gjaldið fyrir 8 tíma vistun með fæði 27.120 krónur en er nú 27.370 krónur.

Könnun verðlagseftirlits ASÍ sýndi mikinn verðmun á hæstu og lægstu gjaldskrá sveitarfélagana fyrir 8 tíma vistun ásamt fæði. Hæsta gjaldið fyrir þessa þjónustu er 37.570 krónur hjá Garðabæ en lægst á 25.280 krónur hjá Reykjavíkurborg sem er 12.290 kr. verðmunur á mánuði eða 49 prósent.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Mesta gjaldskrárhækkunin var 5,3 prósent hjá Sveitarfélaginu Skagafirði úr 32.597 krónum í 34.327 krónur eða um 1.730 kr. á mánuði og um 5,1 prósent hjá Vestmannaeyjabæ úr 34.305 krónum í 36.068 krónur, um 4,5% hjá Kópavogsbæ, um 4 prósent hjá Akureyrarkaupstað og milli 3 og 4 prósent hjá Garðabæ, Fljótdalshéraði,  Akraneskaupstað, Fjarðarbyggð og Árborg.

Seltjarnarneskaupstaður er eina sveitarfélagið sem hefur lækkað gjaldskrána á milli ára en 2015 kostaði mánuðurinn 31.479 krónur en nú 25.495 krónur sem er 5.984 króna lækkun eða 19 prósent, en það gera 65.824 krónur miðað við 11 mánuði á ári.