Hækkun fasteignaskatts verði í takt við verðbólguþróun
Tillaga bæjarráðs Reykjanesbæjar að áfram verði reiknistuðlar fasteignaskatts lækkaðir, bæði á fyrirtæki og einstaklinga og áhrif hækkunar fasteignamats milduð, var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Lagt er til að hækkun fasteignaskatts verði í takt við verðbólguþróun ársins.
Hlutfallið í A stofni fer úr 0,3 í 0,25 og í C stofni úr 1,50 í 1,45. Brúttóálagning á árinu 2023 verða því 2.135 milljónir króna
„Eins og öllum er kunnugt að þá hefur fasteignamat á fasteignum í Reykjanesbæ hækkað verulega á síðustu árum sem hefur haft bein áhrif á fasteignaskatt sveitarfélagsins. Reykjanesbær hefur á undanförnum árum mildað áhrif þessara hækkana verulega og lækkað reiknistuðla um tugi prósenta.
Nú er ljóst að fasteignamat A-stofns íbúðarhúsnæðis í Reykjanesbæ mun hækka um 26,5% og fasteignamat C-stofns atvinnuhúsnæðis 13,4% um næstu áramót. Þessar hækkanir koma til vegna verðhækkana við sölu fasteigna í Reykjanesbæ á síðasta ári og fjölgun eigna,“ segir í bókun sem meirihluti bæjarstjórnar lagði fram á fundi bæjarráðs 18. ágúst.