Hægviðri og stöku skúrir
Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir hægri austlægri eða breytilegri átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 7 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Austan og suðaustan 5-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Skúrir sunnan- og vestantil, en bjartviðri norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands.
Á laugardag og sunnudag:
Sunnanátt og bjart veður norðan- og austanlands, en súld með köflum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag:
Suðlæg átt og hlýtt. Rigning vestanlands, annars þurrt og bjart að mestu.
Af www.vedur.is