Hægviðri og léttskýjað í dag

Klukkan 6 í morgun var suðlæg eða breytileg átt á landinu, víðast 2-6 m/s. Skýjað að mestu á Suðausturlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. Þó var þoka við norðaustur- og austurströndina. Hiti frá 3 stigum á Möðruvöllum upp í 11 stig í Ólafsvík.
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Suðaustan 3-5 m/s og léttskýjað að mestu, en þykknar upp í nótt. Skýjað á morgun og þurrt að mestu. Hiti 11 til 17 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s víðast hvar. Léttskýjað að mestu, en þó eru líkur á þokubökkum við ströndina norðan- og austantil. Þykknar upp vestantil í nótt og dálítil súld af og til á morgun suðvestan- og vestanlands. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum, en svalast í þokunni.