Hægviðri og léttskýjað

Yfirlit: Yfir Íslandi er 1026 mb hæðarhryggur, en 800 km SSV af Reykjanesi er 1007 mb lægð sem hreyfist SA.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun: Hægviðri eða hafgola og víða léttskýjað, en þokuloft við ströndina, einkum á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn: Hægviðri eða hafgola og léttskýjað. Hiti 15 til 22 stig að deginum.