Hægviðri í dag
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun
Hægviðri og skýjað með köflum, en norðaustan 3-8 í nótt og á morgun og léttskýjað. Hiti 8 til 14 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu - Veðurhorfur til kl. 18 á morgun
Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum eða bjartviðri, en líkur á stöku síðdegisskúrum norðanlands í dag. Vaxandi norðaustanátt á morgun, víðast 5-13 síðdegis og þykknar smám saman upp sunnan- og austanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast til landsins.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Austlæg átt 8-13 og súld eða rigning um austan - og suðaustanlands, en annars bjartviðri. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast inn til landsins vestantil. Á föstudag: Suðaustan 5-10, væta sunnanlands en bjart með köflum fyrir norðan. Hiti 8 til 20 stig, svalast við austurströndina. Á laugardag: Austanátt og rigning sunnanlands en annars þurrviðri. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á sunnudag: Suðaustanátt og víða væta einkum sunnanlands. Hiti 10 til 18 stig. Á mánudag: Sunnanátt og skúrir víða um land. Hiti breytist lítið.
Af vef Veðurstofunnar- Myndin sýnir spá fyrir kl. 12 í dag