Hægviðri í dag
Vestan 3-8 m/s. Skýjað og súld öðru hverju. Suðvestlægari seint í kvöld. Sunnan 5-10 á morgun. Hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag og mánudag:
Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast suðvestanlands. Rigning sunnan- og vestanlands, en yfirleitt bjartviðri norðaustantil. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg átt með vætu einkum suðaustanlands, en úrkomulítið vestanlands. Áfram milt í veðri.
Á fimmtudag:
Norðaustanátt með skúrum norðan- og austanlands, en þurru og björtu veðri suðvestantil. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.