Hægur vindur og léttir til í kvöld
Klukkan 9 voru norðvestan 5-10 norðaustantil en annars var norðaustlæg átt, mest 15 m/s á Stórhöfða. Skýjað víðast hvar og farið að rigna við suðvesturströndina. Hiti var 2 til 8 stig, hlýjast við sjóinn suðvestanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Norðaustan og austan 8-13 m/s og stöku skúr. Hægar norðlæg átt undir kvöld og léttir til í nótt. Hiti 6 til 12 stig að deginum.
Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar