Hæglætisveður í dag en hætta á smá skúrum

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 í dag:
Austlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Skúrir sunnan- og vestanlands, rigning austantil en úrkomulítið á Norðurlandi. Suðvestan 8-13 m/s og léttir til austanlands síðdegis og í kvöld, en hægari vindur og skúrir í öðrum landshlutum, einkum suðvestan- og vestanlands. Hiti 7 til 15 stig.