Hæglætisveður í dag

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðvestan 10-18 m/s norðaustantil, en annars hægari. Lægir vestantil með kvöldinu. Víða hæg breytileg eða norðlæg átt á morgun, en áfram norðvestan strekkingur norðaustantil. Dálítil snjókoma fram eftir degi á Norður- og Norðausturlandi, en síðan él. Víða bjart veður sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 7 stig, en 0 til 5 stiga hiti syðst að deginum.