Hæglætisveður í dag

Veðurhorfur á landinu til kl.18 á morgun:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og dálítil rigning eða skúrir, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 7 stig. Vaxandi sunnanátt í kvöld og nótt, 15-20 m/s norðvestanlands á morgun en heldur hægari annars staðar. Skýjað og súld eða rigning sunnan- og vestantil á landinu. Hiti víða 5 til 10 stig.