Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Hægari vindur í kvöld og í nótt
Miðvikudagur 28. september 2005 kl. 09:28

Hægari vindur í kvöld og í nótt

Klukkan 6 var norðlæg átt á landinu, víða 10-15 m/s, en allt að 20 m/s við austurströndina. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en háskýjað og þurrt sunnantil. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast í Skaftafelli.

Um 450 km ANA af Langanesi er allmikil 978 mb lægð, sem mjakast norður og grynnist smám saman. Skammt A af Nýfundnalandi er vaxandi 990 mb lægð sem hreyfist NA.


Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:

Viðvörun: Búist er við stormi sunnan- og vestantil á landinu síðdegis á morgun. Einnig má búast við hvössum vindhviðum á Kjalarnesi í fyrstu.

Norðlæg átt, 10-15 m/s, en norðvestan 15-20 m/s með austurströndinni. Rigning eða slydda á norðanverðu landinu í fyrstu, en síðan éljagangur. Léttir til sunnanlands. Lægir talsvert í nótt. Vaxandi austan átt á morgun, 18-23 m/s og talsverð rigning síðdegis, einkum sunnantil, en hægari og úrkomuminna norðaustantil. Kólnandi veður og víða frost í kvöld og nótt, en hlýnar þegar líður á morgundaginn.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhring:

Norðaustan og norðan 10-15 m/s og léttir til. Heldur hægari vindur í kvöld og nótt. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024