Hægari og léttskýjað
Kl. 06 var suðvestanátt, 8-13 m/s NV-lands en hægari annars staðar. Víða léttskýjað, en skúrir vestantil. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum NA-lands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðvestan 3-8 og stöku skúrir eða él, en hægari og léttskýjað síðdegis. Austan 8-13 og dálítil rigning eða slydda á morgun. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í kvöld og nótt.