Hægari austanátt á morgun og styttir upp
Suðaustan 8-13 m/s og rigning eða súld við Faxaflóa. Hægari austanátt á morgun og styttir upp. Hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 8-13 m/s með vætu, en austan 3-8 á morgun og yfirleitt þurrt. Hiti 9 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag: Gengur í suðaustan 13-18 m/s með rigningu S- og V-lands, en annars 10-13 og þurrt að mestu. Hiti 10 til 15 stig.
Á mánudag: Suðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 9 til 14 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag: Hæg austlæg eða breytileg átt og skúrir víða um land. Hiti 7 til 12 stig.
Á fimmtudag og föstudag: Útlit fyrir norðlæga átt með vætu fyrir norðan, en þurru syðra. Kólnar dálítið í veðri.