Hæg vestlæg eða breytileg átt
 Á Garðskagavita voru ASA 1 og rúmlega 10 stiga hiti klukkan 8.
Á Garðskagavita voru ASA 1 og rúmlega 10 stiga hiti klukkan 8.
Klukkan 6 í morgun  var hæg breytileg átt á landinu. Skýjað að mestu og sums staðar súld eða rigning. Hiti var 6 til 12 stig. 
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Hæg vestlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og úrkomulítið þegar líður á daginn. Hiti 10 til 15 stig. 
Veðurhorfur á landinu:
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Hæg suðlæg átt, en norðaustlægari suðaustantil. Skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar væta fram eftir degi. Austlæg eða breytileg átt á morgun, 3-5 og súld öðru hverju austan- og suðaustantil, annars þurrt. Hiti 10 til 18 stig. 

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				