Hæg suðlæg átt í dag og hiti allt að 12 stig

Yfirlit:
Skammt norður af Langanesi er 1006 mb lægð sem þokast norðaustur. Á Grænlandshafi er heldur vaxandi 1002 mb lægð sem hreyfist lítið.
Veðurhorfur á landinu:
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Fremur hæg suðvestlæg átt og þurrt að mestu um landið vestanvert, en yfirleitt bjart um austanvert landið. Hægviðri í nótt, en gengur í suðaustan og austan 5-10 eftir hádegi á morgun og þykknar upp með dálítilli rigningu allra syðst. Hiti 9 til 17 stig að deginum, hlýjast í innsveitum norðan- og austanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Fremur hæg suðlæg átt í dag, en austlæg á morgun. Skýjað og yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 12 stig.