Hæg norðlæg átt
Veðurspá dagsins fyrir Faxaflóasvæðið: Norðaustlæg átt, 3-8 m/s og bjartviðri, en heldur hvassari, skýjað með köflum og þurrt að kalla á morgun. Hiti 0 til 6 stig yfir hádaginn.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hæg austlæg átt, bjartviðri og hiti 0 til 5 stig. Norðaustan 3-8 m/s á morgun, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hlýnar heldur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Austan og norðaustan 5-10 m/s og víða dálítil rigning eða slydda, en yfirleitt þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti 2 til 7 stig, en um frostmark í innsveitum norðanlands.
Á fimmtudag:
Norðaustan 8-13 m/s NV-lands, en yfirleitt hægari austlæg átt annars staðar. Rigning eða súld með köflum, en skýjað og úrkomulítið á SV- og V-landi. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Norðaustan- og norðanátt, víða 8-13 m/s, en hægari NA-lands. Slydda eða rigning, snjókoma til fjalla, en þurrt að kalla SV- og V-lands. Kólnar í veðri, einkum N-lands.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Norðaustan 8-13 m/s um norðvestanvert landið, en annars hægari austlæg átt. Rigning eða súld með köflum, en þurrt að mestu á SV- og V-landi. Hiti á bilinu 2 til 7 stig.