Hæg norðaustanátt og þurrt
Norðaustan 3-8 m/s, bjart veður og þurrt að kalla, en skýjað að mestu á morgun. Hiti 2 til 7 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hæg norðaustlæg átt og bjart veður, en skýjað að mestu og þurrt að kalla á morgun. Hiti 2 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Norðaustan 8-13 m/s NV-lands, en annars hæg austlæg eða breytileg átt. Rigning eða súld með köflum, en skýjað og úrkomulítið SV-lands. Rofar til S- og A-lands síðdegis. Hiti 2 til 7 stig.
Á föstudag:
Norðaustan- og norðanátt, víða 8-15 m/s, hvassast á Vestfjörðum, en hægari NA-lands. Rigning eða slydda og snjókoma til fjalla, en skýjað að mestu SV-lands. Hiti nálægt frostmarki fyrir norðan, en annars 2 til 6 stig.
Á laugardag:
Norðaustlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið SV- og V-lands. Hiti 2 til 7 stig.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt og skúrir á víð og dreif. Kólnar smám saman í veðri.
--
Ljósmynd/elg - Snæfellsjökull hefur verið vel sýnilegur síðustu daga í tæru loftinu.