Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hæg breytileg átt og bjartviðri
Föstudagur 29. janúar 2010 kl. 08:15

Hæg breytileg átt og bjartviðri


Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn: Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Frost 0 til 7 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hæg breytileg átt, en norðan 3-8 m/s á morgun. Léttskýjað og frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Norðan 8-13 m/s og él við austurströndina, annars hægari vindur og bjart veður. Frost yfirleitt 3 til 10 stig.

Á sunnudag:

Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og stöku él V-lands. Frost 0 til 8 stig, en 0 til 5 stiga hiti vestast.

Á mánudag:
Austlæg átt, skýjað og stöku él. Hiti 0 til 5 stig við suðvesturströndina, annars 0 til 8 stiga frost.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Suðaustan- og austanátt, dálítil slydda eða rigning S-lands en úrkomulítið fyrir norðan. Heldur hlýnandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024