Hæg breytileg átt
Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Snýst í vestan 3-8 seint á morgun og þykknar upp. Hiti 6 til 14 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Vestan 3-8 m/s seint á morgun og þykknar upp. Hiti 5 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Hægviðri og víða léttskýjað, en vestan 3-8 vestanlands undir kvöld og þykknar upp með dálítilli vætu. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn.
Á miðvikudag:
Suðvestan 5-10 og víða rigning, en dregur úr úrkomu þegar líður á daginn. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Norðaustlæg eða breytileg átt með skúrum, einkum norðanlands. Heldur kólnandi.
Á föstudag:
Austan- og norðaustanátt með vætu, en þurrt vestanlands. Hiti víða 4-10 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir norðan- og norðaustanátt með rigningu eða jafnvel slyddu, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Svalt í veðri.