Hæg breytileg átt
Það verður fremur hæg breytileg átt og stöku él við Faxaflóann í dag, en austan 13-18 og snjókoma síðdegis. Snýst í suðvestan 8-13 í kvöld með dálitlum éljum. Hiti um og undir frostmarki.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðlæg átt, víða 10-15 m/s og snjókoma eða él, en léttir til suðaustanlands. Frost 0 til 7 stig.
Á laugardag:
Stíf vestanátt og él, en yfirleitt þurrt og bjart austanlands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Norðlæg átt. Él norðanlands, annars léttskýjað. Kólnandi veður.
Á mánudag:
Austlæg átt, skýjað með köflum og él á stöku stað. Frost 0 til 8 stig. Hvessir og hlýnar vestanlands undir kvöld.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir hvassa suðaustan átt með slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri.