Hæg austlæg átt og léttskýjað
Á Garðskagavita voru NNA 12 klukkan 8 í morgun og 7,7 stiga hiti.
Klukkan 6 í morgun var norðlæg átt, 5-10 m/s vestan- og norðvestanlands, en annars hægari. Rigning eða súld fyrir norðan, en léttskýjað sunnantil. Hiti var 2 til 10 stig, hlýjast syðst á landinu.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Austlæg átt, 3-5 m/s og léttskýjað. Hiti 10 til 17 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðaustan 5-10 m/s norðvestanlands, en annars hægari. Rigning eða súld norðan- og austantil á landinu, en víða bjart suðvestantil. Skýjað en úrkomulítið norðan- og austantil á morgun, en áfram bjart suðvestantil. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suðvestanlands.