Hæg austlæg átt
Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en stöku síðdegisskúrir. Hiti 7 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Suðaustlæg átt, 8-15 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Dálítil væta sunnan- og vestantil, en bjartviðri norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands.
Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og bjart veður norðan- og austanlands, en súld með köflum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðlæg átt og hlýtt í veðri. Rigning vestanlands, annars þurrt og bjart að mestu.