Hæfingarstöðin í Keflavík fær veglegar gjafir
Í vor bárust Hæfingarstöðinni við Hafnargötu í Keflavík styrkir til kaupa á flatskjársjónvarpi. Systrafélag Njarðvíkurkirkju, Lionsklúbburinn Æsa, Lionessuklúbbur Keflavíkur, Fagræsting og Árni Jakob Óskarsson gáfu öll myndarlega peningaupphæð til kaupanna. Leitað var tilboða og keyptur 42” flatskjár ásamt “flakkara” frá fyrirtækinu Omnis í Keflavík. Þann 1. júní var styrkveitendum boðið til veislu þegar flatskjárinn var kominn í gagnið. Þjónustunotendur og starfsfólk Hæfingarstöðvarinnar vill færa öllum sem styrktu kaupin kærar þakkir fyrir veittan stuðning.
Mynd: Fulltrúar gefenda og þjónustunotenda við afhendinguna.