Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gunnuhver einn af draugalegustu stöðum heims
Mánudagur 24. október 2022 kl. 17:09

Gunnuhver einn af draugalegustu stöðum heims

Hið virta tímarit Architectural Digest hefur útnefnt Gunnuhver sem einn af 37 draugalegustu stöðum heims. Í grein á vef tímaritsins vekur saga Gunnuhvers sérstaka athygli. Gunnuhver er eini íslenski staðurinn á listanum sem gefinn er út í tilefni Hrekkjavöku. VisitReykjanes vekur athygli á þessu.

Hið virta tímarit Architectural Digest hefur útnefnt Gunnuhver sem einn af 37 draugalegustu stöðum heims. Í grein á vef tímaritsins er saga Gunnu sögð sérstaklega áhugaverð. Þjóðsagan segir í stuttu máli frá því að vofa Gunnu (Guðrún Önundardóttir) er sögð hafa orðið fjandmanni sínum og eiginkonu hans að bana eftir erjur um pott. Vofa Gunnu hrelldi íbúa á Reykjanesi talsvert eftir það en að lokum var það prestur sem kvaddi Gunnu í hverinn sem nú ber nafn hennar. Þar er hún sögð bregða fyrir annað slagið enn þann dag í dag. Í greininni eru lesendur hvattir til að heimsækja endilega þessa 37 drungalegu staði víðsvegar um heiminn, bara ekki á Hrekkjavöku sem er þann 31. október ár hvert.

Hér má lesa greinina.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024