Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gunni Helga sæmdur starfsmerki UMFÍ
Gunnar Helgason og Guðmundur Sigurbergsson.
Föstudagur 1. mars 2019 kl. 05:03

Gunni Helga sæmdur starfsmerki UMFÍ

Gunnar Helgason var sæmdur starfsmerki UMFÍ á aðalfundi Ungmennafélags Þróttar. Guðmundur Sigurbergsson frá UMFÍ mætti á aðalfund Þróttara og fram kom í máli Guðmundar að Gunnar Júlíus Helgason hefur verið virkur félagsmaður hjá UMFÞ og í hreyfingunni frá unga aldri. Gunnar á að baki áralangt starf til þágu UMFÞ og sinnt hinum ýmsu grasrótarverkefnum frá unga aldri. 
 
Gunnar fór í stjórn UMFÞ ungur að árum og varð formaður félagsins árið 1993 aðeins 19 ára gamall. Fram að þeim tíma hafði hann verið iðkandi, sjálfboðaliði, þjálfari og sinnt hinum ýmsu verkefnum fyrir Þrótt. 
 
Gunnar er einn af fáum sem hefur spilað mótsleiki í körfubolta, handbolta og knattspyrnu undir merkjum Þróttar og var einn af frumkvöðlum handboltaævintýrsins árið 2004 þegar Þróttur sendi lið til leiks í bikarkeppni HSÍ „uppá grínið“. Rataði verkefnið í fjölmiðla við mikla kátínu Vogabúa og annara handboltaunnenda í ljósi þess að um var að ræða heimamenn sem aldrei höfðu æft handbolta áður. 
 
Gunnar spilaði fyrir meistaraflokk Þróttar í knattspyrnu á sínum tíma og varð fyrsti leikmaður í sögu félagsins til að ná 100 leikjum. Gunnar sat í stjórn knattspyrnudeildar til fjölda ára og hefur komið að hinum ýmsu verkefnum í uppgangi félagsins sl. árin. Þegar meistaraflokkur var endurvakinn árið 2008 og Vogavöllur ekki í ástandi til að taka á móti leikjum tók Gunnar að sér verkefnið í sjálfboðaliðastarfi án allar aðkomu UMFÞ og sveitarfélagsins á þeim tíma. Völlurinn stóðst prófið og Þróttur fékk að spila heimaleiki í Vogum á undanþágu næstu árin. 
 
Árið 2007 fór Gunnar í áheitagöngu til styrktar UMFÞ með frænda sínum Hilmari Sveinbjörnssyni. Gengu þeir félagar þvert yfir Ísland 680 kílómetraleið og tók ferðalagið tuttugu daga.  
 
Gunnar tók við formennsku í Þrótti á ný árið 2015 og setið í stjórn félagsins síðustu árin.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024