Guðrúnu Gísladóttir KE lyft af hafsbotni eftir 11 daga?
Fyrirhugað er að starfsmenn Selöy Undervannsservice í Noregi hefjist handa við að lyfta flaki Guðrúnar Gísladóttur KE af hafsbotni í Nappstraumen á fimmtudaginn í næstu viku. Talið er að það taki vikutíma að ná skipinu upp á yfirborðið.
Upphaflega var gert ráð fyrir því að aðgerðir björgunarmanna hæfust nk. mánudag en undirbúningur hefur tafist vegna óveðurs.
Ottar Longva, deildarstjóri í norsku strandstofnuninni (Kystverket), segir í samtali við NRK að bjartsýni ríki um að hægt verði að ná flakinu upp í þessum áfanga þrátt fyrir að slæmt veður hafi tafið undirbúning aðgerðanna, en frá þessu er greint á skip.is.
Fleiri fréttir á skip.is.
VF-ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson