Bygg
Bygg

Fréttir

Guðrún Snorradóttir nýr skólastjóri Myllubakkaskóla
Fimmtudagur 6. maí 2010 kl. 14:42

Guðrún Snorradóttir nýr skólastjóri Myllubakkaskóla


Guðrún Snorradóttir verður ráðin skólastjóri Myllubakkaskóla, samkvæmt einróma samþykkt bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun.

Guðrún er 49 ára, nú starfandi sem landsfulltrúi hjá Ungmennafélagi Íslands. Hún hefur starfað mikið á vettvangi fræðslu- og forvarnarmála. Guðrún starfaði í níu ár sem náms náms- og starfsráðgjafi ásamt kennslu, félagsstarfi og umsjón með heilsdagsvist við þá skóla sem hún starfaði við.

Hún hefur komið að ýmsum þróunarverkefnum sem tengjast grunn- og framhaldsskólum, hefur starfað í ýmsum nefndum og ráðum. Setið í stjórn Félags grunnskólakennaram,  stjórn Náms- og starfsráðgjafa og verið formaður foreldrafélags Foldaskóla.

Guðrún útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, lauk kennaraprófi frá KHÍ og prófi í námsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hún lauk framhaldsnámi í kennslu frá Kennaraháskólanum í Gautaborg, diplomanámi frá Háskóla Íslands í stjórnum menntastofnana og M.ed prófi í menntastjórnun og matsfræði frá sama skóla. 

Matsnefnd sem lagði mat á hæfi umsækjenda taldi Guðrúnum hæfasta til starfsins og bæjarráð samþykkti 5-0 að ganga frá ráðningu hennar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn