Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Guðrún ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðar
Guðrún Þorsteinsdóttir er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og hefur starfað við mannauðsmál síðastliðinn áratug.
Laugardagur 22. september 2018 kl. 15:59

Guðrún ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðar

Guðrún Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Hún gegndi áður sömu stöðu hjá Reykjanesbæ í 7 ár.
Guðrún Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Á árunum 2008-2015 starfaði Guðrún sem mannauðsstjóri Reykjanesbæjar og bar þar meðal annars ábyrgð á að stefnu bæjarins væri framfylgt í öllum stofnunum, auk þess sem hún stýrði og leiddi starfsþróun. Viðskiptablaðið greinir frá þessu.
 
Guðrún lauk meistaranámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2015, diplomanámi í mannauðsstjórnun frá EHÍ árið 2009 auk þess sem hún útskrifaðist árið 1998 með B.Ed gráðu af leikskólakennarabraut við Kennaraháskóla Íslands.
 
Guðrún hefur starfað hjá ISAVA frá árinu 2015 við mannauðsráðgjöf til stjórnenda og flugverndardeildar, auk ráðninga og utanumhalds þeirra. Alls barst  21 umsókn um starfið en tvær umsóknir voru dregnar til baka. Guðrún mun hefja störf 1. október.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024