Guðrún Gísladóttir KE-15 í votri gröf

Þannig segir í tilkynningu strandgæslunnar í framhaldi af því að tankar Guðrúnar hafa verið tæmdir af olíu. Í þeim reyndust aðeins 86 tonn af í stað tæplega 400 og segir strandgæslan líklegast að það sem á vanti hafi lekið úr tönkunum vegna tilfæringa við skipið er þess var freistað að ná því upp.
Tæpir 25 mánuðir eru frá því Guðrún strandaði og sökk í Nappstraumen. Um miðjan síðasta mánuð beindi norska þingið því til sjávarútvegsráðuneytisins að kannað yrði frekar með að fjarlægja flakið af hafsbotni. Óvíst er að sögn norskra fjölmiðla hvenær ráðuneytið tekur afstöðu til erindisins, en það hafði áður ákveðið að skipið skyldi liggja, en frá þessu er greint á mbl.is