Guðný Íslandsmeistari í Ökuleikni öðru sinni
Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á fólksbílum fór fram í gær. Um var að ræða opna Íslandsmeistarakeppni og voru 18 keppendur skráðir til leiks. Guðný Guðmundsdóttir úr Keflavík varð Íslandsmeistari í kvennariðli öðru sinni.
Keppt var í tveimur riðlum, karlariðli og kvennariðli. Keppendur óku í gegnum brautirnar á VW bifreiðum sem Hekla lánaði. Í keppendahóp dagsins voru nokkrir fyrrum Íslandsmeistarar og því ljóst frá byrjun að keppnin yrði spennandi, segir á Brautinni, vef Bindindisfélags ökumanna.
Munurinn á efstu mönnum var afar lítill eins og sjá má má og skal haft í huga að tíminn er samanlagður eftir fjórar umferðir og spurningar.
Fólksbílar kvennariðill
1. Guðný Guðmundsdóttir, 802 sekúndur
2. Hulda Lind Stefánsdóttir, 816 sekúndur
3. Ragna Fanney Óskarsdóttir, 1029 sekúndur
Fólksbílar karlariðill
1. Sighvatur Jónsson, 411 sekúndur
2. Jón Örn Angantýsson, 430 sekúndur
3. Atli Grímur Ásmundsson, 509 sekúndur
Keppendum gafst einnig kostur á að mynda með sér lið og var þá meðaltal keppenda reiknað saman. Þó var tími kvenna lækkaður með tilliti til meðalmunar á tíma karla og kvenna (1,34). Þar urðu Jónssynir efstir en liði samanstendur af bræðrunum Sighvati og Gylfa Jónssonum.