Guðni Th. heimsækir fólk og boðar til fundar í Reykjanesbæ
Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi heimsótti Víkurfréttir í gær ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid, og fylgdarliði. Guðni hefur verið á ferðinni um Reykjanes í gær og í dag þar sem hann kynnir framboð sitt og heyrir í fólki.
Síðar í dag, miðvikudag, verður Guðni Th. með opinn fund í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja að Sunnubraut 36 í Reykjanesbæ. Fundurinn hefst kl. 17:30.