Betri Bær ljósanótt
Betri Bær ljósanótt

Fréttir

Guðlaug M. Pálsdóttir skipuð skólameistari Fjölbraut
Guðlaug og Kristján fráfarandi skólameistari við útskrift vorannar nýlega. Mynd/Oddgeir Karlsson.
Föstudagur 5. júní 2026 kl. 16:30

Guðlaug M. Pálsdóttir skipuð skólameistari Fjölbraut

Guðlaug M. Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Guðlaug býr yfir 30 ára reynslu hjá skólanum þar sem hún hefur gegnt fjölbreyttum störfum og ábyrgðarhlutverkum, meðal annars sem kennari, sviðsstjóri, áfangastjóri, aðstoðarskólameistari og settur skólameistari.

Guðlaug er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun menntastofnana auk kennslufræði til kennsluréttinda frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í líffræði við Háskóla Íslands.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Alls sóttu tveir um embættið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn