Guðbrandur fékk uppbótarsætið eftir endurtalingu - Hólmfríður út
„Bíð með að fagna“
Guðbrandur Einarsson, oddviti Viðreisnar í Suðurkjördæmi segist ætla að bíða eftir því að fagna þingsætinu þar sem Vinstri græn hafa óskað eftir endurtalningu í Suðurkjördæmi. Hólmfríður Árnadóttir, oddviti VG datt út sem uppbótarþingmaður eftir endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi og Guðbrandur kom inn.
„Ég vil þakka fyrir hlýjar kveðjur og hamingjuóskir kæru vinir. Ég ætla hins vegar að bíða morgundagsins með að fagna þar sem að borist hefur beiðni um endurtalningu í Suðurkjördæmi en litlu munar þar á Miðflokki og Vinstri grænum. Það hlýtur að vera áfall fyrir þau sem töldu sig vera komin inn á þing að fá þessar fréttir. Vonandi kemur niðurstaða í þetta strax á morgun og við getum þá haldið áfram með okkar viðfangsefni hver svo sem þau verða,“ segir Guðbrandur á Facebook síðu sinni í kvöld.
Miðað við árangur bæjarfulltrúanna Jóhanns Friðriks Friðrikssonar og Guðbrandar í þessum kosningum er nokkuð ljóst að þeir verða ekki í kjöri til bæjarstjórnar í Reykjanesbæ næsta vor.