Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Guðbrandur er ræðukóngurinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 31. maí 2020 kl. 09:41

Guðbrandur er ræðukóngurinn

Guðbrandur Einarsson, oddviti Beinnar leiðar, var „ræðukóngur“ bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á árinu 2019 en hann tók 63 sinnum til máls á bæjarstjórnarfundum. Næstur honum er félagi hans í meirihlutanum, Friðjón Einarsson, Samfylkingu sem talaði 52 sinnum. Þetta kemur fram í samantekt Jóhanns Friðriks Friðrikssonar, forseta bæjarstjórnar, sem hann lagði fram á fundi bæjarráðs nýlega.

Fjöldi skipta sem bæjarfulltrúar tóku til máls á fundum bæjarstjórnar 2019:

Guðbrandur Einarsson (Y) 63

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Friðjón Einarsson (S) 52

Baldur Þórir Guðmundsson (D) 44

Jóhann Friðrik Friðriksson (B) 42

Margrét Ólöf A Sanders (D) 39

Margrét Þórarinsdóttir (M) 37

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri 32

Gunnar Þórarinsson (Á) 29

Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) 23

Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D) 22

Díana Hilmarsdóttir (B) 9

Styrmir Gauti Fjeldsted (S) 6

Friðjón talaði næst mest fyrstu tvö kjörtímabilin.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, f.v. Baldur, Margrét og Anna Sigríður.