Fréttir

Guðbergur spyr: Þarf í alvöru alvarlegt slys?
Fimmtudagur 26. febrúar 2026 kl. 10:00

Guðbergur spyr: Þarf í alvöru alvarlegt slys?

Guðbergur Reynisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sakar bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að tefja nauðsynlegar umferðaröryggisumbætur við Fitjabraut og Fitjabakka og spyr hvort „þarf í alvöru alvarlegt slys eða jafnvel banaslys“ til að meirihlutinn bregðist við.

Bókun Guðbergs var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 17. febrúar, þegar fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. febrúar var til umræðu. Þar gagnrýnir hann að „fund eftir fund“ sé rætt og rifist um aðgerðir sem ekki eigi að ráðast í og heldur því fram að starfsfólki Reykjanesbæjar hafi verið bannað að verja fjármunum í verkefnið.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Hann segir nauðsynlegt að setja meiri orku og fjármagn strax í umferðaröryggi, sérstaklega fyrir börn, og að taka „alvöru ákvarðanir“ sem móti umferðarmenningu til framtíðar í stað „endalausra plástra“ sem megi helst ekki kosta neitt. Í lok bókunarinnar skorar hann á meirihlutann, Samfylkingu, Framsókn og Beina leið,  að hætta að tala og fara að framkvæma.

Að bókuninni stóðu Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Birgitta Rún Birgisdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk, auk Margrétar Þórarinsdóttur fyrir Umbót.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar