Fréttir

  • Grunur um íkveikju í fjölbýli við Hafnargötu í nótt
    Frá vettvangi brunans í nótt. VF-mynd: Hilmar Bragi
  • Grunur um íkveikju í fjölbýli við Hafnargötu í nótt
    Slökkvilið á vettvangi í nótt.
Fimmtudagur 1. desember 2016 kl. 09:23

Grunur um íkveikju í fjölbýli við Hafnargötu í nótt

- Átta fóru á HSS vegna gruns um reykeitrun

Tilkynnt var um eld á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Hafnargötu 32 í Reykjanesbæ um klukkan þrjú í nótt. Eldur logaði í þvottavél í sameiginlegu þvottahúsi og í fatahrúgu á öðrum stað, sem vekur grunsemdir um íkveiku, að því er fram kemur á Facebook-síðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Í húsinu búa um þrjátíu manns.

Átta íbúar voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna gruns um reykeitrun. Aðrir voru fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins á Iðavöllum og hluti hópsins fór til ættingja og vina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þegar slökkvilið kom á vettvang höfðu íbúar komist út. Þá voru rúður farnar að springa vegna hita. 

Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Suðurnesjum og verður rætt við íbúa í dag. Lögreglan óskar eftir því að allir sem hafi upplýsingar um málið hafi samband, annað hvort í síma 444-2200 eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook-síðu lögreglunnar.

Átta voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vegna gruns um reykeitrun.