Fréttir

Grunnskólar fengu úthlutað úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar
Þriðjudagur 19. júní 2018 kl. 07:00

Grunnskólar fengu úthlutað úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar

Alls fengu þrjátíu skólar víðs vegar á landinu úthlutað fjárstyrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Heildarúthlutun sjóðsins fyrir árið 2018 er 4.100.000 í formi fjárstyrkja og 4.550.000 í formi tölvubúnaðar. Styrkurinn skal nýttur í að þjálfa kennara til að búa betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur. Tilgangur sjóðsins er að efla tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins og frá stofnun hans árið 2014 hefur verið úthlutað til skóla landsins styrkjum fyrir ríflega 40 milljónir króna.

Í ár fengu yfir 30 skólar  styrk frá sjóðnum. Skólarnir skuldbinda sig með styrknum til  að hafa forritun sem hluta af námskrá skólans í að minnsta kosti tvö ár og hlutu grunnskóli Grindavíkur og Gerðaskóli í Garði styrk frá sjóðnum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Það er ánægjulegt að geta stutt við forritunarkennslu í skólum landsins á þennan hátt. Auk þess að stuðla að aukinni fræðslu þá er einnig markmið sjóðsins að auka áhuga barna og unglinga á forritun og tækni. Það er ljóst að það er mikilvægt í skólastarfi að efla forritunarkunnáttu skólabarna enda byggja þær tækniframfarir sem eru að eiga sér stað núna á stafrænum grunni sem tengir ýmsa tækni saman og mun hafa áhrif á fyrirtæki og samfélög til lengri tíma,“ segir Sigfríður Sigurðardóttir, stjórnarformaður Forritara framtíðarinnar.

Um Forritara framtíðarinnar
Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins eru Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Advania,  KOM,WebMo og Menntamálaráðuneytið. Í stjórn sitja Arnheiður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ský og UTmessunnar, Bjarki Snær Bragason deildarstjóri hugbúnaðardeildar hjá Össuri, Elsa Ágústsdóttir forstöðumaður markaðsmála hjá RB, Friðrik Guðjón Guðnason forstöðumaður hjá Landsbankanum og Sigfríður Sigurðardóttir skrifstofustjóri CCP sem er einnig formaður stjórnar.