Fréttir

Grunnskólanemar kynntu sér framtíðarstörfin
Lögreglustarfið var vinsælt á kynningunni.
Fimmtudagur 12. október 2017 kl. 14:05

Grunnskólanemar kynntu sér framtíðarstörfin

Starfsgreinakynning fyrir nemendur í 8. og 10. bekkjum grunnskólanna á Suðurnesjunum fór fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut í gær. Alls voru 108 störf kynnt og hefur fjölbreytnin á þessari kynningu aldrei verið eins mikil.

Markmið kynningarinnar er að efla starfsfræðslu grunnskólanemenda og stuðla að sambærilegri fræðslu fyrir alla á svæðinu. Þá er hún ekki síður mikilvægur þáttur í því að skerpa á framtíðarsýn ungs fólks.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Meðfylgjandi myndir tók Sólborg Guðbrandsdóttir en meira verður fjallað um málið í Suðurnesjamagasín í næstu viku.

Starfskynning grunnskólanna