HSS
HSS

Fréttir

Grunnskólakrökkum boðið í bíó
Föstudagur 3. mars 2006 kl. 17:10

Grunnskólakrökkum boðið í bíó

Nemendur í eldri bekkjum grunnskóla í Reykjanesbæ fá tilbreytingu í skólastarfinu þessa dagana því í dag fóru nemendur úr Holtaskóla á sérstaka skólasýningu á frönsku Heimildarmyndinni March of the Penguins. Aðrir skólar munu fylgja í kjölfarið eftir helgi, en sýningarnar eru í boði stórfyrirtækjanna Samkaupa, Sparisjóðsins í Keflavík og Hitaveita Suðurnesja.

Myndin fjallar um líf keisaramörgæsa á Suðurskautslandinu á afar hjartnæman hátt. Þar er fylgst með því hvernig þessir tignarlegu fuglar annast um afkvæmi sín þar til þau geta séð um sig sjálf við hrikalegar náttúruaðstæður.

Hvatamaðurinn að þessu framtaki er Haraldur Axel Einarsson, sem er kennari í Heiðarskóla auk þess að vera rekstrarstjóri Sambíóanna í Reykjanesbæ. „Ég fékk hugmyndina að þessu þegar við hjá Sambíóum vorum að velja myndir til sýningar. Ég sá þar strax að myndin ætti fullt erindi við þá bekki grunnskóla sem læra náttúrufræði.“

Haraldur setti sig í samband við öfluga bakhjarla sem voru boðnir og búnir til að taka þátt og gera hugmyndina að veruleika. Eftir að hver skóli var búinn að samþykkja málið frá sinni hendi var ákveðið að slá til og nemendur annarra skóla í Reykjanesbæ fá að njóta myndarinnar í næstu viku.

Myndin hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna og hefur unnið allnokkur, en hún er talin sigurstrangleg í keppninni um óskarsverðlaun í flokki heimildarmynda.

Þess má einnig geta að myndin verður í almennum sýningum í Keflavík kl. 18 um helgina.

Hér má sjá frekari upplýsingar um myndina March of the Penguins

Bílakjarninn
Bílakjarninn