Bygg
Bygg

Fréttir

Grunnskólakennarar í endurmenntun
Mynd úr safni
Föstudagur 23. ágúst 2013 kl. 09:11

Grunnskólakennarar í endurmenntun

Grunnskólakennarar í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði sátu endurmenntunarnámskeið á vegum fræðslusviðs Reykjanesbæjar.

Dagana 12. og 13. ágúst sátu grunnskólakennarar í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði endurmenntunarnámskeið á vegum fræðslusviðs Reykjanesbæjar.  Kennarar gátu valið um fjölbreytt námskeið sem snerta ýmis svið náms- og skólastarfs í grunnskólum. Sem dæmi má nefna námskeið um innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, útinám, skapandi stærðfræði, sjálfbærni, samstarf list- og verkgreinakennara, innleiðingu nýrrar aðalnámskrár grunnskóla í íþróttum og öðrum greinum.

Einnig voru námskeið frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar blindra og sjónskertra og frá samtökunum Blátt áfram. Námskeiðin voru vel sótt af kennurum og skólafólki sem þessa dagana undirbýr móttöku nemenda í skólann.

Bílakjarninn
Bílakjarninn