Grunnskólakennarar fræddir um hinseginleika
Endurmenntunardagar fyrir grunnskólakennara í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði standa nú yfir en síðasta skólaár var Hinseginfræðsla í nokkrum skólum Reykjanesbæjar.
Helgi Arnarsson, sviðsstjóri Fræðslusviðs Reykjanesbæjar, segir í samtali við Víkurfréttir að mikilvægt sé að starfsfólk skólanna fái fræðslu til þess að geta tekið umræðu um þessi mál með nemendum sínum. „Við munum svo skoða það á næstunni með skólastjórnendum hvernig við munum haga fræðslu til nemenda.“