MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Grunaður um ölvunarakstur og beit lögreglumann
Lögreglumaðurinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.
Mánudagur 31. október 2016 kl. 10:48

Grunaður um ölvunarakstur og beit lögreglumann

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina vegna gruns um ölvunarakstur brást illa við og beit lögreglumann í höndina. Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla. Lögreglumaðurinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Þá var lögreglu tilkynnt um bifreið utan vegar skammt frá hringtorginu við Grænás. Ökumaður var sjáanlega ölvaður og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem frekari rannsókn fór fram.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept
Bílakjarninn
Bílakjarninn