Miðvikudagur 8. október 2008 kl. 09:38
Grunaður um ölvunarakstur
Tilkynnt var um umferðaróhapp við gatnamót Garðskagavegar og Heiðarbergs um kl. hálf ellefu í gærkvöld. Þar hafði bifreið verið ekið útaf veginum og var ökumaður hennar einn á ferð. Hann er grunaður um ölvun við akstur. Bifreiðin var óökufær og því flutt af staðum með dráttarbifreið.