Laugardagur 17. nóvember 2007 kl. 10:13
Grunaður um ölvun velti bíl
Ökumanni, sem grunaður er um ölvun, fipaðist aksturinn í hálku á Grindavíkurvegi snemma í morgun með þeim afleiðingum að bílinn valt og hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn slapp með minniháttar meiðsl en bíllinn er mikið skemmdur.