Grunaður um kynferðisofbeldi gegn þremur stúlkum
Rúmlega fertugur karlmaður af Suðurnesjum hefur setið í gæsluvarðhaldi í um sex vikur grunaður um að hafa beitt stjúpdóttur sína grófu kynferðisofbeldi með reglulegu millibili um margra ára skeið.
Mögulegt þykir að maðurinn hafi einnig brotið gegn dóttur sinni og jafnvel þriðju stúlkunni til viðbótar, sem einnig tengdist honum fjölskylduböndum, samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag.
Maðurinn var handtekinn skömmu fyrir páska eftir að lögreglunni á Suðurnesjum barst kæra á hendur honum fyrir gróft ofbeldi gegn stjúpdótturinni og vægari brot gegn dóttur hans.
Stjúpdóttirin, sem nú er rúmlega tvítug, hafði greint móður sinni frá ofbeldinu og kvað það hafa staðið með hléum í um áratug. Í kjölfarið sagði dóttir þeirra, sem er á unglingastigi í grunnskóla, frá því að maðurinn hefði leitað á hana. Sögunum fylgdi að hann hefði hótað þeim lífláti segðu þær móður sinni eða öðrum frá brotunum.
Samkvæmt heimildum blaðsins áttu brotin sér flest stað þegar móðirin var fjarstödd vegna næturvinnu. Síðustu brotin gegn stjúpdótturinni munu hafa verið framin einni viku áður en maðurinn var handtekinn. Þá hefur, sem áður segir, kviknað grunur um vægari brot gegn þriðju stúlkunni, sem um skeið var tengd inn í fjölskylduna.