Grunaður um fíkniefnaakstur og faldi sig á baðherbergi
Þrír ökumenn voru handteknir í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra, tæplega fertugur karlmaður, hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, en gaf í og ók inn á bifreiðastæði við íbúðarhús. Þar hljóp hann út úr bílnum og inn í húsið bakdyramegin. Lögregla veitti honum eftirför inn og handtók hann síðan inni á baðherbergi hússins, en þangað hafði hann stokkið á flótta sínum.
Myndin er úr safni og tengist ekki vettvangi fréttarinnar.