Föstudagur 6. júní 2003 kl. 00:40
Grunaður bankaræningi enn í haldi lögreglu

Engar nýjar fréttir er að hafa af rannsókn lögreglunnar í Keflavík á bankaráninu í útibúi Landsbanka Íslands í Grindavík í dag. Að sögn Halldórs Jenssonar, varðstjóra, er grunaður bankaræningi enn í haldi lögreglunnar. Sporhundur leitaði að ránsfengnum á Reykjanesi síðdegis en án árangurs.Ránið var framið í útibúinu kl. 12:47 í gær, fimmtudag, og tveimur tímum síðar handtók lögreglan hinn grunaða á Grindavíkurvegi, þar sem hann var á leið út úr bænum.
Maðurinn var klæddur bláum samfestingi og með græna lambhúshettu þegar hann framdi ránið. Hann var jafnframt vopnaður hnífi.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson. Lögreglustöðin í Keflavík í kvöld. Ljós í gluggum á efri hæð, þar sem rannsóknarmenn eru að störfum.