Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Grunaðir um fíkniefnaneyslu með börn sín í bílnum
Mánudagur 19. júní 2017 kl. 10:35

Grunaðir um fíkniefnaneyslu með börn sín í bílnum

Ökumaður sem Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur var með fimm ára gamlan son sinn með sér í bílnum. Fullorðinn farþegi í bílnum, sem einnig var grunaður um fíkniefnaneyslu, var með tveggja ára son sinn meðferðis. Löggregla tilkynnti barnaverndaryfirvöldum um atvikið.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá voru átta ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 107 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km. Ökumaðurinn hafði ekki náð 18 ára aldri og var barnaverndarnefnd því gert viðvart, auk viðurlaga við umferðarlagabroti af þessu tagi.