Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Gróf líkamsárás í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 14. febrúar 2008 kl. 09:40

Gróf líkamsárás í Reykjanesbæ

Gróf líkamsárás átti sér stað í Heiðarhvammi í Reykjanesbæ um kvöldmatarleytið í gær þegar tveir hettuklæddir menn réðust með barefli á feðga. Sonurinn, sem er 19 ára gamall, er kjálka og kinnbeinsbrotinn eftir árásina.

Báðir árásarþolarnir voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.  Þaðan var annar mannanna fluttur með sjúkrabifreið á Landsspítalann við Fossvog en hann hafði brotnað illa í andliti við höggin. 

Árásarmannana er nú leitað og biður lögreglan á Suðurnesjum alla þá, sem geta gefið einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.  Árásarmennirnir eru hávaxnir, annar um 180 cm á hæð en hinn um 190 cm á hæð, annar klæddur í dökkan kuldagalla, hinn aðilinn var klæddur í stutta mittisúlpu og gallabuxum.  Þeir voru báðir með hettur á höfði og rennt að þannig að illa sást í andlitin á þeim.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024